Þessi snjallvara styðst við alþjóðlega Matter-staðalinn sem gerir hana auðvelda í uppsetningu, notkun og tengingum við DIRIGERA gáttina og önnur þekkt kerfi.
Snjallperan gerir þér kleift að aðlaga lýsinguna að mismunandi athöfnum – sem gerir heimilislífið einfaldara og þægilegra.
Með því að tengja vöruna við Matter-vottaða gátt opnast fleiri möguleikar og þú getur stýrt henni ásamt öðrum snjallvörum í IKEA Home smart appinu.
Umbreyttu heimilinu með fjarstýringu. Veldu snjallperu til að skapa andrúmsloft fyrir betri einbeigingu, deyfðu lýsinguna til að skapa réttu stemninguna – eða skiptu um lit til að koma þér í partígírinn!
Notaðu DIRIGERA gáttina og IKEA Home smart appið til að laga lýsinguna að takti dagsins, stjórna mörgum ljósum í einu – og láta þau kveikja og slökkva á sér sjálfkrafa svo það líti út fyrir að einhver sé heima þegar þú ert í burtu.
IKEA snjallperur, skynjarar og fjarstýringar virka vel saman – þvert á kynslóðir. Blandaðu saman, stækkaðu og stjórnaðu snjallheimilinu þínu á þinn hátt.