Frábært nestisbox fyrir yngstu fjölskyldumeðlimina til að taka með í skólann, á íþróttaæfingar og í ferðalög – en hentar alveg jafn vel fyrir fullorðna til að taka með í vinnuna.
Sniðuga handfangið gerir það að verkum að nestisboxið er auðvelt og skemmtilegt fyrir börn að bera.
Í nestisboxinu eru aðskilin hólf – til dæmis fyrir bragðgóða samlokur og ferska ávexti.
Nestisboxið er með sniðugt hólf fyrir hnífapör. Bættu við KALAS hnífapörum sem passa sérstaklega vel í boxið.